Of grönnum fyrirsætum meinuð þátttaka í tískuviku

Fyrirsætan Gisele Bundchen dansar samba á götu í Ríó.
Fyrirsætan Gisele Bundchen dansar samba á götu í Ríó. AP

Fimm fyrirsætum hefur verið meinuð þátttaka í tískuvikunni í Madrid á Spáni á grundvelli þess að þær séu of grannar en aðstandendur tískuvikunnar hafa sett þau skilyrði fyrir þátttöku fyrirsæta að þær falli að viðmiðunum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) um heilbrigða líkamsþyngd. Þá vísa forsvarsmenn tískuvikunnar "Pasarela Cibeles" einnig til spænskra laga um fyrirbyggjandi aðgerðir gegn átröskunum.

68 fyrirsætum sem ætluðu að taka þátt í tískuvikunni var gert að stíga á vigtina og að því loknu var kjörþyngd þeirra og hlutfall líkamsfitu reiknað út. Sem fyrr segir var síðan fimm spænskum fyrirsætum meinuð þátttaka.

Áhrifamenn í tískuheiminum í París og New York hafa gagnrýnt aðgerðirnar og sagt þær hlálegar. “Vilji Jean-Paul Gaultier hafa feitar stúlkur í sýningu sinni þá mun enginn stöðva hann. Þegar Galliano hefur stúlkur í sýningu sinni sem ekki eru yfirmáta fallegar þá segir enginn neitt,” segir Didier Grumbach, forseti frönsku tískusamtakanna.

Þá segir Stan Herman, forseti samtaka bandarískra tískuhönnuða aðgerðirnar bera vott um mismunun.

Stúlkur sem tóku þátt í tískuvikunni í Madrid á síðasta ári lýstu því opinberlega yfir að þær gengju í táningastærðum og ættu á hættu að missa vinnuna þyngdust þær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg