Angelina brjáluð við Brad fyrir að leika á móti gömlu kærustunni

Brad Pitt.
Brad Pitt. AP

Fregnir herma að Angelina Jolie sé brjáluð út í Brad Pitt fyrir að hann skyldi taka að sér í hlutverk í kvikmyndinni „Dirti Tricks,“ þar sem hann leikur á móti gömlu kærustunni sinni, Gwyneth Paltrow. Brad og Gwyneth voru í eina tíð jafn heitt par og Brad og Angelina eru um þessar mundir.

Breska tímaritið Star hefur eftir heimildamanni: „Hún missti stjórn á skapi sínu þegar hún komst að þessu. Hún virðist heltekin afbrýðisemi. Angelina vildi ekki að Brad tæki hlutverkið að sér, en hann skrifaði undir samninginn engu að síður, gegn vilja hennar. Hún heldur að Gwyneth hafi aldrei komist almennilega yfir skilnaðinn við Brad. Hún sagði meira að segja við hann að hún myndi fara til Frakklands í tvo mánuði þegar tökur á myndinni hefjast, og hann sagði að ef það væri það sem hún vildi skyldi hún fara.“

Gwyneth er gift Chris Martin, söngvara Coldplay, og eiga þau tvö börn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.