Jessica Simpson leitar að alvöru manni með sætan rass

Jessica Simpson.
Jessica Simpson. AP

Jessica Simpson er á höttunum eftir alvöru manni sem langar að eignast fjölskyldu, en hann má gjarnan vera með sætan rass, að því er leikkonan greindi frá í spjallþættinum "The View" í gærkvöldi. Sagðist hún vera búin að fá sig fullsadda af strákum og langaði í mann.

"Hvað strákana varðar þá þarf ég ekki á þeim að halda. Mig langar í mann, einhvern sem er góður fjölskyldumaður ... og er óhræddur við að halda á börnum ... Það er þetta sem mér finnst aðlaðandi í fari manns, og það er ekki verra að hann hafi sætan rass," sagði Jessica.

Hún er 27 ára og skildi við Nick Lachey í fyrra.

Henni var boðið að vera gestaumsjónarmaður þáttarins í gærkvöldi, en framleiðendum var nokkur skapraun að því að þeim þótti hún lítið ræða við aðra gesti þáttarins, en leggja alla áherslu á að kynna nýju tískulínuna sína.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg