Heimsóttu kynlífsbúð í Hollywood

Beckham hjónin eru hlynnt tilraunastarfsemi

Beckham hjónin eru hlynnt tilraunastarfsemi AP

David og Viktoría Beckham birgðu sig upp af alls kyns dóti í kynlífsbúð í Hollywood síðustu helgi.  

Hjónin heimsóttu verslunina Pleasure Chest og festu þau kaup á ýmsum hlutum, þ.á.m. leðursvipu og fóðraðri hundaól. „Þau gengu um, héldust í hendur og David hélt á litlum innkaupapoka. Þau virtust vita nákvæmlega hvað þau vildu og báðu afgreiðslumann að benda þeim á hvar ákveðnir hlutir væru geymdir í búðinni“, greindi heimildarmaður frá.

En svefnherbergið er ekki eini staðurinn þar sem tilraunastarfsemi fer fram. David hefur beðið vin sinn, hinn aldræmda kokk Gordon Ramsey, um ráðleggingar um hvernig hann geti gengið í augu konu sinnar í eldhúsinu. „David er mikill sælkeri og Viktoría einnig. Ég held að hann gæti verið fínn í eldhúsinu og ég myndi ekki hika við að rétta honum hjálparhönd“, sagði Ramsey. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is