Afganskir íþróttamenn æfa nú fyrir ólympíuleikana í Peking í sumar þótt aðstaða til íþróttaiðkana sé frekar frumstæð. Þátttaka kvenna í íþróttum er sjaldgæf í Afganistan en 19 ára gömul stúlka, sem ætlar að keppa í 1500 metra hlaupi, er ein af fjórum frjálsíþróttamönnum sem stefna til Kína.