Móðir og bróðir söngstjörnu skotin til bana

Lögregla í Chicago í Bandaríkjunum rannsakar dauða móður og bróður bandarísku söng- og kvikmyndastjörnunnar Jennifer Hudson. Mæðginin fundust skotin til bana á heimili sínu í borginni.

Lögregla segir, að svo virðist sem um hafi verið að ræða fjölskylduharmleik þar sem Darnell Donerson, móðir Hudson, og Jason Hudson, bróðir hennar, létu lífið. Lýst var eftir karlmanni og var hann handtekinn í kvöld. Óstaðfestar fréttir segja, að um sé að ræða William Balfour, fyrrum eiginmann Juliu, eldri systur Jennifer Hudson. En er leitað að 7 ára gömlum dreng, syni Juliu.

Jennifer Hudson nýtur mikilla vinsælda í Bandaríkjunum. Hún þakkaði í nýlegu viðtali í Vogue móður sinni fyrir að hafa hvatt sig til að taka þátt í American Idol söngkeppninni, þar sem hún vakti athygli. Hún fékk síðan Óskarsverðlaun fyrir besta leik kvenna í aukahlutverki fyrir myndina Dreamgirl. Þá er nýtt lag hennar, Spotlight, í 1. sæti Billboard vinsældalistans.

Jennifer Hudson fékk Óskarsverðaun á síðasta ári.
Jennifer Hudson fékk Óskarsverðaun á síðasta ári. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg