Dagblað, sem kínverski kommúnistaflokkurinn gefur út, gagnrýnir nýjustu skífu bandarísku rokkaranna í Guns N´Roses harðlega. Platan sem heitir, Kínverskt Lýðræði (e. Chinese Democracy) er sögð vera árás á kínverska alþýðu.
Platan, sem hefur verið í vinnslu í um 15 ár, kom loks í verslarnir í gær. Það er hins vegar talið ólíklegt að hægt sé að kaupa gripinn eftir löglegum leiðum í Kína, en þar í landi er tónlist, kvikmyndir og öll útgáfa ritskoðuð af yfirvöldum.
Greinin í málgagni Kommúnistaflokksins, sem ber heitið Global Times, er undir fyrirsögninni „Bandarísk hljómsveit gefur út plötu sem er eitruð árás á Kína“. Platan „beinir spjótum sínum að Kína,“ segir m.a. í greininni.