Komin í meðferð

Mæðgurnar Sharon og Kelly Osbourne
Mæðgurnar Sharon og Kelly Osbourne mbl.is

Kelly Osbourne, hin 24 ára gamla dóttir rokkarans Ozzy Osbourne, er komin í meðferð.

Móðir stúlkunnar, Sharon, staðfesti að Kelly hefði skráð sig inn á meðferðarheimili rétt utan við Los Angeles.

„Já, Kelly er komin í meðferð. Hvað getum við meira sagt? Hún vissi að þetta væri það eina rétta í stöðunni á þessum tímapunkti og við erum stolt af henni að gera það. Öll fjölskyldan stendur henni að baki. Kelly vissi að hún þyrfti á hjálp að halda og hún er að leita eftir henni,“ sagði Sharon.

Móðirin neitaði þó að gefa upp gegn hverju meðferðin nákvæmlega væri, en Kelly hefur tvisvar sinnum farið í meðferð áður, en í báðum tilfellum var hún háð verkjalyfjum.

Búist er við að meðferðin taki um mánuð.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.