Paris laus á ný

Paris Hilton og Doug Reinhardt komu saman á MTV kvikmyndahátíðina …
Paris Hilton og Doug Reinhardt komu saman á MTV kvikmyndahátíðina fyrir skömmu. Reuters

Fulltrúi bandarísku sjónvarpsstjörnunnar Paris Hilton hefur greint frá því að hún sé einhleyp á ný eftir að hafa slitið nokkurra mánaða sambandi sínu við leikarann Doug Reinhardt. 

„Vegna fyrirspurna um það hvort Paris Hilton sé hætt með Doug Reinhardt, getum við staðfest að það er rétt. Þau eru ekki lengur saman,” segir í yfirlýsingu fjölmiðlafulltrúans. „Þau verða áfram vinir og við biðjum um að einkalíf þeirra verði virt. Paris mun ekki tjá sig nánar um sambandið.”  

Greint hefur verið frá því í bandarískum fjölmiðlum að Doug hafi árangurslaust reynt að komast inn á landareign Paris í Los Angeles frá því hún sleit sambandi þeirra en að verðir hennar hafi ekki hleypt honum inn.

Þá eru fjölskylda hennar og vinir sögð fagna því að sambandinu sé lokið þar sem þau hafi talið að Doug væri að notfæra sér hana til að vekja athygli á sjálfum sér.

Skammt er síðan Paris lýsti því yfir að þau væru yfir sig ástfangin og að hann væri framtíðareiginmaður hennar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg