Kostnaður við þátttöku Íslands í Feneyjatvíæringnum í ár nemur um 59 milljónum króna, skv. bráðabirgðauppgjöri frá Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar sem sér um framkvæmd verkefnisins. Íslenska ríkið leggur til um 24,5 milljónir króna en um afganginn sjá einkaaðilar. Um 95% kostnaðar við verkefnið eru í evrum og hefur leiga á sýningarrýminu m.a. tvöfaldast, í krónum talið, frá seinasta tvíæringi vegna veikrar stöðu krónunnar nú.