Endar Pamela Anderson í skuldafangelsi?

Pamela Anderson
Pamela Anderson Reuters

Fimm byggingafyrirtæki hafa höfðað mál gegn Pamelu Anderson vegna ógreidda reikninga. Halda þeir því fram að fyrrum Strandvarðastúlkan skuldi þeim eina milljón dala fyrir vinnu við hús hennar í Malibu í Kaliforníu.

ins vegar virðist leikkonan ekki eiga aur í buddunni og hefur því ekki getað greitt þeim fyrir vinnu við nýja húsið í sex mánuði. Eru iðnaðarmennirnir afar ósáttir við hana og telja að hún sé veruleikafirrt. Þeir séu bláfátækir iðnaðarmenn með fjölskyldur á framfæri og hún geri ekkert til þess að greiða þeim laun fyrir vinnu sína.

Anderson keypti húsið á 1,4 milljónir dala og hefur þegar eytt 1,6 milljónum dala í það þá er hvorki komið rafmagn né pípulagnir í húsið. Aftur á móti eru komnar gylltar flísar í sundlaugina, rándýrir sófar og hljóðkerfi fyrir 22 milljónir króna. Talið er að hún verði að leggja um eina milljón dala til viðbótar í húsið svo það verði íbúðarhæft. Þangað til mun hún búa ásamt sonum sínum, Brandon, 13, og  Dylan, 11, í hjólhýsi í nágrenninu.

Pamela Anderson
Pamela Anderson Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg