Sala áskriftarkorta á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur gengið framar vonum. Nú þegar hafa verið seld tæplega 26.000 sæti í áskrift og ber þar hæst 114% aukningu í tónleikaröðum Sinfóníunnar; gulri, rauðri og grænni tónleikaröð. Ef öll kort eru talin er heildaraukningin 57% á milli ára.