Ræstingamaður, sem starfar á Ostwall-listasafninu í Dortmund í Þýskalandi, skemmdi listaverk sem metið er á meira en eina milljón Bandaríkjadollara.
Á listaverkinu var spanskgræna sem var hluti af verkinu, en ræstirinn ályktaði að um óhreinindi væri að ræða og nuddaði hana af.
Verkið er eftir listamanninn Martin Kippenberger og nefnist „When It Starts Dripping From the Ceiling“ eða Þegar drjúpa tekur úr lofti. Það samanstendur af gúmmífötu og trévegg.
Safnið var með verkið í láni og það er ennþá til sýnis þrátt fyrir skemmdirnar.