Britney Spears með flatan maga

Britney Spears hefur sjaldan litið jafn vel út.
Britney Spears hefur sjaldan litið jafn vel út. mbl.is/Cover Media

Britney Spears hefur sjaldan litið jafn vel út og þessa dagana. Hún hefur unnið hörðum höndum upp á síðkastið við nýjustu plötu sína, Femme Fatale, og er vinnan farin að borga sig.

Vefmiðill breska dagblaðsins Daily Mail greinir frá því að söngkonan hafi spókað sig um á sundlaugarbakkanum í gær með kærastanum, Jason Trawick. Með í för voru synir hennar tveir. Britney var í grænu bikiníi og vakti flatur magi hennar athygli ljósmyndara. 

Britney er þessa dagana að kynna plötu sína og hélt meðal annars tónleika í Aptoteose-tónleikahöllinni í Brasilíu í gær.

Móðir söngkonunnar, Lynne, er með dóttur sinni á ferðalaginu og hjálpar henni með synina þegar þess þarf. Ekki var að sjá að stjörnustælarnir væru að þvælast fyrir Spears því hún veifaði aðdáendum sínum og heilsaði öllum á hótelinu.

Fram kemur á vef Daily Mail að Britney hafi sjaldan litið jafn vel út, með ljósa lokka og óvenju náttúruleg í útliti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg