„Mannréttindi í fyrsta sæti – Eurovision í öðru“

Páll Óskar í þjóðlegum gír. stækka

Páll Óskar í þjóðlegum gír. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson vill að Ríkisútvarpið dragi íslenska lagið úr Evróvisjónsöngvakeppninni sem haldin verður í Bakú í Aserbaídsjan síðar á árinu. Páll Óskar telur að mannréttindabrot framin í landinu ættu að vera nægileg ástæða til taka ekki þátt í ár.

Þessa skoðun sína viðrar Páll Óskar á samfélagsvefnum Facebook, og vísar í fréttaflutning af mannréttindabrotum í Bakú, s.s. því að íbúum í borginni sé vísað af heimilum sínum svo hægt sé að byggja glæsihýsi tengd keppninni.

„Það ætti að vera þver pólitísk samstaða milli þjóða um að mannréttindabrot verði aldrei liðin. Afstaða mín er einföld. Ísland á að draga sig útúr Eurovision keppninni í Bakú í Aserbaídsjan. Mannréttindi í fyrsta sæti – Eurovision í öðru sæti,“ segir Páll Óskar og hefur fengið góð viðbrögð við færslu sinni.

Vinir Sjonna á sviðinu í fyrra.

Vinir Sjonna á sviðinu í fyrra. Reuters

Páll Óskar er annar tveggja kynna á úrslitakvöldi forkeppninnar hér á landi sem fram fer í Hörpu á laugardag. Páll segist ekki ætla að minnast einu orði á Aserbaídsjan en segir svo: „Ég hef nú þegar hvatt Pál Magnússon til að afþakka þátttöku Íslands í Eurovision í Bakú. Ég vona að hann geri það og taki þessari áskorun minni. Listamaðurinn sem vinnur keppnina á laugardaginn getur líka afþakkað ferðina sjálfur ef hann vill.“

Geta keppendur Íslands stigið á svið?

Meðal þeirra sem tekið hafa undir skoðun Páls Óskars er Illugi Jökulsson. Í færslu á vefsvæði sínu segir Illugi að eina réttlætingin fyrir því að taka þátt í keppninni sé að um græskulausa og saklausa skemmtun sé að ræða. „En þegar þessi græskulausa saklausa skemmtun er hvorki græskulaus né saklaus, þá er engin ástæða til að vera með. Og það má kveða sterkar að orði – þá eigum við ekki að vera með.“

Illugi Jökulsson.

Illugi Jökulsson.

Færslu sinni lýkur Illugi svo á spurningu til þeirra sem taka þátt á úrslitakvöldinu í Hörpu: „Geta keppendur Íslands stigið á svið í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan vitandi að fátækt fólk var rekið á hrottalegan hátt frá heimilum sínum til að reisa glitrandi sviðið?“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem rætt erum mannréttindabrot í Aserbaídsjan í tengslum við  Evróvisjónsöngvakeppninni. Eftir keppnina í fyrra var sagt frá því að stjórnendur evrópskra sjónvarpsstöðva og aðdáendur Evróvisjón hefðu áhyggjur af mannréttindabrotum gegn hommum og lesbíum í Aserbaídsjan og teldu óheppilegt að söngvakeppnin verði haldin í Bakú.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is