Hertogahjónin höfða mál

Myndbirting franska tímaritsins Closer hefur vakið athygli og nú hafa …
Myndbirting franska tímaritsins Closer hefur vakið athygli og nú hafa hertogahjónin af Cambridge höfðað mál á hendur tímaritinu. AFP

Vilhjálmur Bretaprins og eiginkona hans, Katrín hertogaynja af Cambridge, höfðuðu í dag mál gegn franska tímaritinu Closer fyrir að hafa brotið gegn friðhelgi einkalífs þeirra með því að birta myndir af Katrínu berbrjósta.

Á myndunum, sem eru víst nokkuð óskýrar, enda teknar með aðdráttarlinsu, má sjá Katrínu íklædda bikiníbuxum einum fata og Vilhjálmur sést nudda sólaráburði á bak hennar. Talsmenn hjónanna segja þau vera miður sín vegna myndbirtingarinnar og þetta atvik hafi vakið sárar minningar hjá prinsinum um það hvernig fjölmiðlar eltu móður hans, Díönu prinsessu heitna, á röndum.

Ritstjóri Closer, Laurence Pieau, ver myndbirtinguna og segir myndirnar síður en svo hneykslanlegar. Hún segist ætla að selja þær öðrum fjölmiðlum. 

Samkvæmt frönskum lögum varðar myndbirtingin að öllum líkindum við lög um friðhelgi einkalífsins, en ólíklegt er talið að aðstandendur tímaritsins verði dæmdir til harðari refsingar en sektargreiðslu. Lögum samkvæmt væri hægt að dæma útgefanda eða ritstjóra tímaritsins til árs fangelsisvistar, en engin fordæmi eru fyrir svo þungum refsingum við brotum af þessu tagi.

Frétt mbl.is: Myndir birtar af Kate berbrjósta

Katrín, hertogaynja af Cambridge.
Katrín, hertogaynja af Cambridge. AFP
Forsíða franska tímaritsins Closer, sem birti myndir af Katrínu, hertogaynju …
Forsíða franska tímaritsins Closer, sem birti myndir af Katrínu, hertogaynju af Cambridge, berbrjósta í nýjasta tölublaði sínu. AFP
Hjónin Vilhjálmur og Katrín
Hjónin Vilhjálmur og Katrín AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur mun meiri áhrif á umhverfi þitt en þú sjálfur heldur. Gættu þess að þú fáir þá viðurkenningu sem þú átt skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur mun meiri áhrif á umhverfi þitt en þú sjálfur heldur. Gættu þess að þú fáir þá viðurkenningu sem þú átt skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav