Myndir birtar af Kate berbrjósta

Franska tímaritið Closer hefur birt myndir af Kate hertogaynju af Cambridge þar sem hún sést án brjóstahaldara. Myndirnar voru teknar þegar hún var í sumarleyfi í síðustu viku í Frakklandi.

Myndirnar voru teknar með aðdráttarlinsu, en í frétt BBC um málið segir að ekki fari milli mála að myndirnar séu af Katrínu, eiginkonu Vilhjálms prins.

Vilhjálmur og Kate eru á ferðalagi í Asíu. Þau fréttu af því í gær að birta ætti myndirnar, en þau voru þá stödd á hóteli í Kuala Lumpur í Malasíu.

Fram kemur í frétt BBC að myndirnar hafi verið boðnar breskum blöðum til kaups í síðustu viku, en þau hafi hafnað því að birta þær. Haft er eftir starfsmönnum konungshallarinnar að Kate og Vilhjálmur séu sorgmædd og miður sín yfir birtingu myndanna.

„Þetta atvik, ef rétt reynist, færir klukkuna 15 ár aftur í tímann,“ sagði heimildarmaður AFP úr starfsliði hjónanna sem er með þeim á ferðalagi í Malasíu. Hann vísaði þar til þess þegar Díana prinsessa, móðir Vilhjálms, lést í umferðarslysi í París árið 1997 þegar hún var að flýja undan ljósmyndurum.

Ekki eru nema nokkrar vikur síðan nektarmyndir voru birtar af Harry prins. Hann var þá að skemmta sér á hóteli í Las Vegas í Bandaríkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert ekki einfær um að hrinda í framkvæmd þeirri áætlun, sem stendur huga þínum næst. Sígandi lukka er best og það hefur sannast á starfsferli þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Eppu Nuotio
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert ekki einfær um að hrinda í framkvæmd þeirri áætlun, sem stendur huga þínum næst. Sígandi lukka er best og það hefur sannast á starfsferli þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Eppu Nuotio
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir