Alltaf verið orkubolti

María Birta tekur á móti Edduverðlaununum í gærkvöldi.
María Birta tekur á móti Edduverðlaununum í gærkvöldi. Styrmir Kári

Því miður eru klukkutímarnir í sólarhringnum mínum aðeins 24, en ef einhver á auka klukkustundir fyrir mig þá auglýsi ég hér með eftir þeim,“ segir María Birta Bjarnadóttir, verslunareigandi Maniu, leikkona og þúsundþjalasmiður sem lætur ekkert stoppa sig. Það er ekkert orðum aukið að María sé kraftmikil kona en næstu dagar og mánuðir, jafnvel árið sem nánast er nýhafið er planað.

„Ég er að fara í snjóbrettaferð til Noregs í lok þessa mánaðar, svo til Flórída í fallhlífarstökkferð í mars og fer þaðan til Los Angeles og verð í þrjár vikur svo eitthvað sé nefnt. Ég mun ferðast mikið á þessu ári, en ég ætla að reyna mitt allra besta að finna tíma til að fljúga meira. Mig langar að klára einkaflugmannsréttindin í ár. Ásamt því mun ég taka mótorhjólaprófið í vor og næturstökksréttindin í fallhlífarstökkinu ásamt svo mörgu öðru.“

María Birta er fædd árið 1988 og uppalin í Vesturbænum og gekk í Grandaskóla þangað til hún var 12 ára gömul. Þá flutti hún í Grafarvog og fór síðan í Menntaskólann við Hamrahlíð.

Hún sló í gegn í unglingamyndinni Óróa, varð stjarna í Svartur á leik og er núna í kvikmyndahúsum í myndinni XL. Hún opnaði búðina Maníu ung að árum og hefur lengi verið áberandi í íslensku þjóðfélagi. María Birta er dóttir Bjarna Friðrikssonar og Sigurlaugar Halldórsdóttur en stjúpi hennar er Pálmi Gestsson.

Meðframleiðandi að nýjustu myndinni

María Birta birtist landsmönnum nú sem Æsa í myndinni XL. Hún leikur ekki aðeins í myndinni því hún er einnig meðframleiðandi. „Ég hef ekki prófað það áður,“ segir hún og hlær, en eins og margir vita er María Birta ekki sérlega bangin við að prófa eitthvað nýtt. „XL var flókin mynd, flókinn karakter og lítill undirbúningstími. Ég leik þarna mjög brotna stúlku og var þarna í nokkrum mjög erfiðum senum sem tóku á.“

Hlutverk Dagnýjar í Svartur á leik tók líka talsvert á en þar túlkar María Birta stúlku sem er á kafi í heimi fíkniefna.

„Ég er engan veginn sæta stelpan í öllum þessum myndum sem ég hef leikið í og er sannfærð um að komandi hlutverk munu færa mér allt aðra karaktera að fást við og nýja reynslu, en mér finnst ég hingað til hafa verið mjög heppin að vera einmitt ekki að festast í einhverju einu hlutverki.“

Hún hins vegar vill ekkert gefa upp um komandi verkefni. „Ég er að skoða svona hitt og þetta en ekkert sem ég get rætt að svo stöddu,“ segir María Birta.

Kringlan og kvartanir

Um jólin kom fjöldi frétta af Maríu Birtu, fataverslun hennar Maníu, og baráttunni við Kringluna. María Birta segir að hún hafi farið inn í Kringluna í algjörri neyð þegar það kviknaði í húsnæði verslunarinnar á Laugaveginum. „Mér bauðst þarna húsnæði til afnota yfir hátíðirnar frá yndislegum manni sem setti sig í samband við mig. Þar sem fjölskylda hans hafði áður lent í svipuðu áfalli vildi hann hjálpa mér í gegnum þessa erfiðu tíma.

Þegar ég var einungis búin að vera með markaðinn minn opinn í þrjá tíma byrjuðu að berast kvartanir frá annarri verslun í Kringlunni um að vöruverðið hjá mér væri of lágt. Ég ræddi við markaðsstjórann þeirra og mér var sagt að ég mætti vera með jólamarkað eða tilboðsmarkað eins lengi sem það héti ekki útsala og var búin að ræða við framkvæmdastjórann þeirra um að ég myndi auðvitað ekki vera með sömu vörur og einhver annar í húsinu, en svo sólarhring eftir opnun var mér sagt að rekstrarfélag Kringlunnar væri búið að fá á sig kæru og einnig sá sem í góðmennsku sinni lánaði mér húsnæðið sem er í hans einkaeign. Þetta var mér auðvitað rosalegt áfall og varð ég mjög reið því að ég var búin að fylgja öllum þeim reglum sem búið var að setja mér, en í ljósi þessa alls varð ég að loka og flytja aftur sem er auðvitað mjög tímafrekt og kostnaðarsamt.“

Og enn er Manía til húsa á Laugavegi 51, Kringlan er ekki á dagskrá. „En ég er núna að leita mér að nýrri skrifstofu.“

Keypti brúðarkjól 16 ára

María Birta er mikið fyrir eldri hluti en móðir hennar, Sigurlaug Halldórsdóttir flugfreyja, smitaði dótturina af söfnunaráráttunni. Eitthvað sem hefur þó elst af Maríu Birtu að hennar sögn. „Móðir mín er með mikla söfnunaráráttu og þá sérstaklega fyrir gömlum munum og geymir næstum allt. Ég var með þessa áráttu á sínum tíma og byrjaði að safna símum en mér finnst gamlir símar svo miklu flottari en þessir nýju, en blessunarlega er ég laus við þetta í dag. Ég seldi svo símana sem margir hverjir eru stofudjásn í dag því þeir voru allir alveg einstaklega vel með farnir.“

María Birta hefur ekki alltaf fetað þá slóð sem allir aðrir feta og hún tryggði sér brúðarkjól þegar hún var aðeins 16 ára gömul. Þá var hún stödd í New York með móður sinni. „Mamma manaði mig í að máta einn, svo fór hún næstum að gráta þegar hún sá mig í honum, enda alveg ofboðslega fallegur silkikjóll og hún sagði að ég yrði að kaupa hann, svo þetta endaði þannig að ég keypti hann gegn því að mamma myndi halda á honum heim því hann var svo þungur.“

María Birta hefur verið inn í tískunni og margir öfunda hana af því að geta klætt sig nánast í hvað sem er. Allt fer henni vel. „Ég held að flestar ungar stelpur hafi áhuga á tísku en annars er pabbi með mjög gott auga og mamma líka fyrir fallegri hönnun svo ætli áhuginn minn komi ekki frá þeim báðum.“

Elskar 101 Reykjavík

María Birta hefur gífurlega orku og útgeislun sem aðrir taka eftir. Hún er alltaf að finna sér nýja hluti að prófa og því ekki úr vegi að spyrjast fyrir um hvernig hún hafi verið sem barn? „Ég var rosalega mikill orkubolti þegar ég var yngri og það hefur ekkert breyst. Ég fékk snemma mikinn áhuga á klifri og það hræddi mömmu oft mikið, því hún þurfti stöðugt að hafa auga með því hvort ég væri nokkuð að fara mér að voða,“ segir hún og brosir.

Hún hefur ferðast víða en kann best við sig þar sem hún er stödd núna, í miðbæ Reykjavíkur. „Af þeim stöðum sem ég hef búið á er best að búa í 101, klárlega. Ég hef aldrei verið ánægðari en einmitt á þeim stað sem ég bý á núna, er að leigja fallega og bjarta íbúð á Laugaveginum, en annars gæti ég hugsað mér að búa í Hong Kong, New York, LA og Dóminíska lýðveldinu af þeim stöðum sem ég hef komið á.“

Kommentakerfin hafa sína kosti og galla

María Birta hefur verið áberandi í þónokkurn tíma enda stór og mikill karakter. Gert ýmsa hluti sem vakið hafa athygli og leikið í bíómyndum þar sem hún er óhrædd við að sýna nekt. Eitthvað sem athugasemdakerfin á vefsíðum hafa ekki þagað yfir. „Mér finnst kommentakerfin hafa sína kosti og galla, en annars eru alltof margir sem hugsa ekki áður en þeir setja inn eitthvað ærumeiðandi eða hreinlega eitthvað illkvittið og stundum alveg að tilefnislausu, en sjálf hef ég ekki mikið lent í aðkasti inni á kommentakerfum, en auðvitað er alltaf einhver einn og einn sem er ósáttur við það sem maður er að gera eða stendur fyrir en ég læt það ekkert á mig fá.“

Dýravinur með byssuleyfi

Stutt er síðan María Birta fékk sér skotvopnaleyfi en hún hefur ekki gert það upp við sig hvort hún ætlar að sækja um að veiðahreindýr á næsta ári. „Ég hef nú ekki farið í neinar veiðiferðir síðan ég fékk skotveiðileyfið, en mér finnst mjög gaman að skjóta leirdúfur. Ég hef ekki enn ákveðið hvort ég sæki um að veiða hreindýr, en mig grunar nú að ég muni gera það. Ég fékk að fljóta með á hreindýraskyttiríi í fyrra og þótti það alveg ótrúleg upplifun.“ Þrátt fyrir að vera með byssuleyfi er María Birta mikill dýravinur og hefur átt fjöldann allan af dýrum en núna er það kanínan Lúlli sem á hug hennar og hjarta. „Ég elska öll dýr og hef átt þau flest, slöngu, skjaldbökur, hamstra, ketti, hunda, fiska, snigla, maríuhænur og svona mætti lengi telja, en kanínur eru í miklu uppáhaldi og Lúlli er án efa sætasta kanína í heiminum,“ segir hin magnaða María Birta áður en hún hleypur af stað. Hún hefur ekki endalausan tíma til að sitja í viðtali.

María Birta í hlutverki Dagnýjar í kvikmyndinni Svartur á leik …
María Birta í hlutverki Dagnýjar í kvikmyndinni Svartur á leik sem gerist í undirheimum. mbl.is
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg