Verður amma og mamma á sama tíma

Jade Jagger er gengin sex mánuði á leið en dóttir …
Jade Jagger er gengin sex mánuði á leið en dóttir hennar á von á barni í apríl. Ljósmynd/Instagram

Nýjustu fregnir herma að Jade Jagger, dóttir rokkarans Mick Jagger sé gengin sex mánuði á leið, sem er einkar skemmtilegt í ljósi þess að fyrir nokkrum mánuðum var sagt frá því að hún væri að verða amma í fyrsta sinn eins og greint var frá á mbl.is.

Jade Jagger, sem er 42 ára gömul, birti mynd af sér á Instagram þar sem hún sýnir kúluna. Samkvæmt heimildum HELLO! skrifaði hún undir myndina: „Ég er glöð að tilkynna að þessi amma er að verða mamma, ég er komin sex mánuði á leið.“

Jade Jagger og plötusnúðurinn eiginmaður hennar Adrian Fillary gengu í það heilaga í júlí árið 2012.

Dóttir Jade Jagger, Assisi Jagger (21 árs), er að undirbúa komu frumburðar síns og kærastans í heiminn en hún er sett í apríl.

Mick Jagger verður þar af leiðandi langafi í fyrsta sinn eftir nokkra mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg