Óttarr ekki með á æfingu á föstudaginn

Hljómsveitin Pollapönk flytur framlag Íslands til Eurovision í ár.
Hljómsveitin Pollapönk flytur framlag Íslands til Eurovision í ár.

Óttarr Proppé, tónlistar- og alþingismaður, verður ekki á sviðinu í Kaupmannahöfn á föstudaginn þegar Pollapönk æfir framlag Íslands, No Prejudice, fyrir Eurovision í ár. Þarf hann að skjótast aftur til Íslands til að taka þátt í úrslitum spurningaþáttarins Útsvari fyrir hönd Reykjavíkur. Frá þessu er greint á facebooksíðu Pollapönks.

Fyrri undankeppnin fer fram nk. þriðjudag, 6. maí, og verður Ísland sjöunda landið til að stíga á svið það kvöld.

Eins gott að tvífarinn „haldi kúlinu“

„Þetta eru harðir herrar hjá RÚV þegar maður er með puttana í mörgum pottum hjá þeim,“ segir Óttarr í myndskeiði sem birt er á facebooksíðunni. Flýgur hann aftur heim til Íslands á föstudaginn og aftur til Kaupmannahafnar á laugardag.

Óttarr segist vera búinn að finna tvífara sinn og mun hann standa á sviðinu í stað hans. „Hann er skeggjaður og það er tæplega sentímeters munur á okkur. Hann mun standa í minn stað. Ef hann er rétt klæddur og ber sig almennilega, þá munu tæknimennirnir ekki sjá neinn mun,“ segir Óttarr í myndskeiðinu.  

Óttarr segir eins gott að hann „haldi kúlinu“, annars verði hann ekki ráðinn aftur. 

Hér má sjá myndskeiðið

Hér má sjá lagið No Prejudice í flutningi Pollapönks

Óttarr Proppé, tónlistar- og alþingismaður.
Óttarr Proppé, tónlistar- og alþingismaður. Ómar Óskarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg