Leikaraparið Ryan Gosling og Eva Mendes eignuðust dóttur síðastliðinn föstudag samkvæmt Us Weekly.
Fjölmiðlum hefur enn ekki borist formleg tilkynning um fæðingu stúlkubarnsins en aðstandendur Us Weekly segjast hafa fengið fréttina staðfesta af mörgum mismunandi aðilum tengdum parinu. Gosling og Mendes tókst að halda óléttunni leyndri í um sjö mánuði eða fram í júlí síðastliðinn og því er ekki ólíklegt að almenningur muni enn þurfa að bíða um nokkurt skeið áður en fyrstu myndir af barninu taka að birtast í slúðurmiðlum vestanhafs.