Universal Pictures hefur sent frá sér nýja stillimynd frá Everest, nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks. Á henni má meðal annars sjá í fyrsta skiptið tvo af aðalleikurum myndarinnar, þá Jake Gyllenhaal og Josh Brolin.
Meðal annarra leikara í myndinni eru Sam Worthington, Keira Knightley og Ingvar Eggert Sigurðsson. Everest kemur í kvikmyndahús á seinni hluta næsta árs, en áður hefur Baltasar gert tvær stórar myndir í Hollywood, 2 guns og Contraband.
Í myndinni er sagt frá tveimur hópum sem leggja á fjallið og lenda í brjáluðum snjóstormi.