Í gær var greint frá því að Jay-Z og Beyoncé hefðu komið íbúum Óslóar á óvart þegar þau mættu í óvænta heimsókn og spókuðu sig um götur borgarinnar. En ekki vildi betur til en svo að stjörnuparið olli múgæsingi fyrir utan höfuðstöðvar Tidal-tónlistaveitunnar en Jay-Z er einn stærsti eigandi hennar.
Þegar íbúar Óslóar fréttu að parið væri mögulega í höfuðstöðvum Tidal flykktust aðdáendur þeirra á staðinn.
Á meðfylgjandi myndbandi má sjá lífverði aðstoða þau Jay-Z og Beyoncé við að koma sér í jeppann sem beið þeirra fyrir utan höfuðstöðvarnar. Jay-Z var augljóslega ekki skemmt.
Jay-Z og Beyoncé í óvænta heimsókn til Noregs