Ofurfyrirsætan Miranda Kerr sást á stefnumóti með Evan Spiegel, einum stofnanda snjallforritsins Snapchat, á dögunum.
Hin 32 ára Kerr sást kyssa og knúsa hinn 25 ára Spiegel á veitingastað í Kaliforníu um helgina. „Þau sátu við barinn og keluðu. Þau voru hugfangin af hvort öðru,“ sagði heimildamaður US Weekly.
Spiegel er yngsti milljarðamæringur heims samkvæmt heimildum Forbes. Hann er metinn á um 1,5 milljarða dollara þökk sé Snapshat-forritinu vinsæla sem gerir fólki kleift að senda stutt myndskeið til annarra notenda.
Kerr var eitt sinn gift leikaranum Orlando Bloom en nýverið hafa fréttir borist af því að hann sé kominn með nýja kærustu. Þau Kerr og Bloom eru því greinilega samtaka þegar það kemur að þessum málum.
Orlando Bloom er kominn með nýja kærustu