Síðustu dagar hafa verið söngkonunni Celine Dion afar erfiðir. Á fimmtudaginn lést eiginmaður hennar og umboðsmaður til margra ára, Rene Angelil, eftir baráttu við krabbamein og nú hefur bróðir söngkonunnar einnig greinst með krabbamein.
Samkvæmt heimildarmanni Newsday.com er bróðir hennar sagður vera afar veikur. Dion hefur þegar aflýst fyrirhuguðum tónleikum í Las Vegas um helgina vegna missisins. Hún undirbýr nú jarðarför Angelils sem á að fara fram næsta föstudag í basilíkunni í Montreal í Kanada, sömu kirkju og hjónin giftu sig í.