Aljóðlega kvikmyndahátíðin í Berlín, eða Berlinale, er í fullum gangi og mikill stjörnufans samankominn til að kynna myndir sínar. Þeirra á meðal eru Coen-bræður, en nýjasta kvikmynd þeirra Hail Caesar er á dagskrá hátíðarinnar.
„Ég hef gert fjórar myndir með þeim og í hvert sinn sem þeir senda mér handrit segja þeir mér að ég muni leika algeran bjána. Ég er alltaf til í að gera það, en vissi þó ekki að ég yrði svona heimskur í myndinni,“ lýsti leikarinn George Clooney yfir á blaðamannafundi.
„Ég man þegar þeir sendu mér handritið að Burn After Reading og tilkynntu mér að þeir hefðu skrifað handritið með mig í huga vegna þess að vitleysingurinn er með kynlífsleikfang í kjallaranum hjá sér og ég hugsaði með mér: hvað er eiginlega að þessu fólki?“
Frétt mbl.is: Channing Tatum dansar í sjóliðabúningi