Elísabet Englandsdrottning datt í lukkupottinn á dögunum þegar hún vann gjafabréf upp á 50 pund (jafnvirði 8.900 íslenskra króna) frá matvöruversluninni Tesco. Það var reyndar hesturinn hennar sem tæknilega séð vann gjafabréfið en það var í verðlaun á Royal Windsor-hestasýningunni, en þess má geta að hún er haldin í bakgarði drottningarinnar.
Drottningin virtist himinlifandi þegar að hún fékk gjafabréfið eftir að hestur hennar, Barber Shop, hlaut fyrstu verðlaun sýningarinnar.
Hún virtist afslöppuð í léttu vesti og með sjal um höfuðið á meðan hún ræddi við aðra áhorfendur. Mátti sjá drottninguna brosa breitt þegar hún skoðaði gjafabréfið gaumgæfilega.
Talsmaður Tesco sagði síðar um daginn að verslunin óskaði drottningunni innilega til hamingju með vinninginn. „Við vonum að þetta hjálpi aðeins við konunglegu innkaupin.“