„Þetta er fyrir þig Ísland,“ heitir eitt allra nýjasta tónlistarmyndband tónlistarmannsins David Guetta þegar það er þýtt yfir á hið ástkæra ylhýra.
Áður en menn hlaupa upp til handa og fóta af þjóðarstolti er rétt að benda á að til eru 23 aðrar útgáfur af sama tónlistarmyndandi, sem allar bera nöfn þátttökulanda í Evrópumóti karla í knattspyrnu.
Í hverju myndbandi fyrir sig er skotum af Guetta og söngkonunni Zöru Larsson blandað við valin skot af stærstu augnablikum viðkomandi lands í undankeppninni. Þannig sjást íslensku landsliðsmennirnir og stuðningsmenn þeirra fagna mörkum og sigrum auk þess sem önnur skot frá leikjunum rata inn.
Sjón er sögu ríkari.