Mátti ekki sænga hjá eiginmanninum

Katie Price og eiginmaður hennar, Kieran Hayler.
Katie Price og eiginmaður hennar, Kieran Hayler. Ljósmynd / skjáskot Mirror

Fyrrverandi glamúrfyrirsætan Katie Price hefur greint frá því að henni hafi ekki verið heimilt að stunda kynlíf með eiginmanni sínum, Kieran Hayler, á meðan hann leitaði sér hjálpar vegna kynlífsfíknar.

Árið 2014 komst upp um hjúskaparbrot Haylers, en hann hafði haldið við vinkonu Price, líkt og fram kemur í frétt Mirror. Í kjölfarið fór hann í sálfræðimeðferð, enda segist hann hafa þjáðst af kynlífsfíkn.

Price segist ekki hafa efast um tryggð eiginmannsins, enda hafi þau aldrei átt í vandræðum með samlífið. Þá bætti hún við að eina skiptið sem þau hafi hætt að stunda kynlíf hafi verið á meðan Hayler var í meðferð.

„Við áttum aldrei í vandræðum með nánd í sambandi okkar, en þess vegna var svo erfitt að skilja þetta. Ef hann hefði ekki verið að fá það heima hjá sér hefði maður skilið þetta, en sú var ekki raunin.“

Price segir einnig að hjónakornin hafi þurft að halda sig frá kynlífi í óratíma meðan á meðferðinni stóð. Hún segir þó að það hafi allt verið þess virði.

„Ég kann betur að meta nýja Kieran en gamla Kieran. Gamli Kieran er dáinn. Hann er allt önnur manneskja. Það sýnir að fólk getur breyst ef það vill það. Hann er lifandi sönnun þess.“

Frétt mbl.is. Minnir eiginmanninn á framhjáhaldið daglega

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes