Samband ungstirnisins Justin Biebers og Sofiu Richie hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarnar vikur.
Frétt mbl.is: Hver er þessi Sofia Richie?
Bieber fór mikinn á samfélagsmiðlum á dögunum, þar sem hann birti fjölmargar myndir af nýju kærustunni. Ekki voru allir á eitt sáttir við ráðahaginn og fengu skötuhjúin yfir sig mikinn fúkyrðaflaum.
Frétt mbl.is: Selena Gomez lætur Bieber heyra það
Söngvarinn lokaði í kjölfarið Instagram-reikningi sínum, enda orðinn langþreyttur á húllumhæinu og skítkastinu í garð nýju kærustunnar.
Frétt mbl.is: Bieber lokar Instagram-reikningi sínum
Ekki hafa þó allir mikla trú á sambandi Biebers og Richie, en heimildamaður tímaritsins People segir söngvarann ólíklegan til að festa ráð sitt.
„Sofia og Justin eru í miklum ástarbríma þessa stundina. Það er þó nær ómögulegt, miðað við hvar hann er staddur á ferlinum, að eitthvað af þessum samböndum muni endast,“ segir heimildamaður tengdur söngvaranum.
„Allar þessar stelpur falla kylliflatar fyrir honum, en hann er ekki að fara að festa ráð sitt.“