Segir Bieber hafa verið að grínast

Justin Bieber var að grínast í aðdáendum sínum, og finnst …
Justin Bieber var að grínast í aðdáendum sínum, og finnst þeir hreint ekki glataðir. AFP

Myndband með ungstirninu Justin Bieber, þar sem hann heyrist segja ungum aðdáendum sínum að þeir séu hreint glataðir, hefur farið eins og eldur í sinu um netheima.

Frétt mbl.is: „Þið eruð glötuð“

Bieber var staddur í Noregi á dögunum, þar sem hann hélt tónleika, en norskir aðdáendur stjörnunnar tóku myndskeiðið upp.

Fólk var hreint ekki ánægt með framkomu söngvarans í garð aðdáenda sinna, enda argasti dónaskapur að segja að fólk sé algerlega ömurlegt.

Nú hefur stúlkan sem tók myndbandið upp þó stigið fram og sagt að söngvarinn hafa hreinlega verið að grínast.

Stöllurnar Awa Dyrkorn, Zeinab Sowe og Live Bojang höfðu komið sér vel fyrir fyrir utan hótel Biebers, í von um að rekast á hann. Þær eltu síðan Bieber og fylgdarlið hans á næturklúbb, þar sem þær tóku að dansa fyrir utan glugga skemmtistaðarins. Skömmu síðar birtist átrúnaðargoðið og lét hin fleygu orð: „you guys suck“ falla. En við það hættu vinkonurnar að taka upp.

„Við vorum að mynda allan tímann, en þegar hann sagði þetta hættum við að taka upp vegna þess að við héldum að hann væri fúll. Síðan fór hann að hlæja og spurði okkur hvernig kvöldið hafði verið, þannig að hann var ekkert reiður,“ sagði hin 16 ára Awa Dyrkorn í samtali við Dagbladet.

„Hann sagði að við værum glataðar þegar hann sá okkur dansa, en það var bara í djóki. Við stóðum og dönsuðum allan tímann,“ sagði Dyrkorn og bætti við að þær vinkonur væru ekkert sérlega góðir dansarar.

Þá getur almenningur tekið gleði sína á ný, enda virðist Bieber hinn fínasti piltur eftir allt saman.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes