Rokkhundurinn Mick Jagger, sem er 73 ára, á von á áttunda barni sínu á næstunni. Jagger og barnsmóðir hans, hin þrítuga Melanie Hamrick, eiga ekki í sambandi en söngvarinn hefur þó heitið því að hugsa vel um erfingjann.
Samkvæmt frétt Daily Mail festi söngvarinn kaup á glæsihýsi í New York fyrir barnsmóður sína, en það kostaði fimm milljónir Bandaríkjadala, sem samsvarar 575 milljónum íslenskra króna.
„Mick er afar upptekinn af vinnu en hann hefur lofað að heimsækja barnið þegar það kemur í heiminn. Líkt og aðrir umhyggjusamir feður vill hann koma að uppeldi barnsins. Hann ætlar að styðja barnið fjárhagslega,“ er haft eftir ónefndum heimildarmanni tengdum söngvaranum.
Frétt mbl.is: Borgar barnsmóðurinni fúlgur fjár