Gagnrýnd fyrir horaðar fyrirsætur

Victoria Beckham þykir nota sérlega horaðar fyrirsætur þegar hún sýnir …
Victoria Beckham þykir nota sérlega horaðar fyrirsætur þegar hún sýnir föt sín. AFP

Tískudrottningin Victoria Beckham hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að nota tágrannar fyrirsætur til að sýna fatnað sinn.

Á dögunum deildi Beckham mynd á Instagram-síðu sinni þar sem fyrirsæta sést klæðast pilsi eftir hana. Myndin hefur vakið hörð viðbrögð, en fyrirsætan þykir sérlega grönn.

Eins og sjá má á athugasemdunum við færsluna eru margir ósáttir.

„Þetta er ógnvekjandi mynd, og ekki góð auglýsing. Hún þarf á mat og sólskini að halda. Vinsamlegast notastu við venjulega útlítandi fyrirsætur, við erum ekki öll skinn og bein,“ sagði einn netverji.

„Hún lítur út fyrir að vera veik,“ er haft eftir öðrum.

„Fordæmið sem þú setur ungum konum er alger smán. Þú ættir að skammast þín,“ má einnig lesa við færsluna.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Beckham sætir gagnrýni fyrir að notast við afar grannar fyrirsætur. Í vor tók hönnuðurinn þátt í tískuvikunni í New York, þar sem hún sýndi vor- og sumarlínu sína og þóttu fyrirsætur hennar vera afar grannar.

Frétt mbl.is: Gagnrýnd fyrir skinhoraðar fyrirsætur

Kisses from NYC! Pre AW17 collection Thank u @marine_deleeuw XVB

A photo posted by Victoria Beckham (@victoriabeckham) on Dec 5, 2016 at 3:34pm PST

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt að setjast niður og gera þér grein fyrir því, hvað það er sem þú raunverulega sækist eftir í lífinu. Leitaðu upplýsinga um það sem þú þarft að fá að vita.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt að setjast niður og gera þér grein fyrir því, hvað það er sem þú raunverulega sækist eftir í lífinu. Leitaðu upplýsinga um það sem þú þarft að fá að vita.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav