Kanye West og Kim Kardashian virðast hafa grafið stríðsöxina og náð sáttum við hjónakornin Beyoncé og Jay Z, en andað hafði köldu á milli þeirra um nokkurt skeið.
Rapparinn fór mikinn á síðasta ári og úthúðaði Jay Z meðal annars fyrir að hafa ekki heimsótt sig eftir að eiginkona hans, Kim Kardashian, var rænd í París. Þá sakaði hann Beyoncé einnig um að beita bellibrögðum til að vinna verðlaun fyrir besta tónlistarmyndbandið á MTV-verðlaununum á síðasta ári.
Frétt mbl.is: Kanye hélt þrumuræðu og stormaði af sviðinu
Frétt mbl.is: Jay Z þolir ekki Kanye
Rapparinn var skömmu síðar lagður inn á sjúkrahús, en hann átti við andleg veikindi að stríða.
Allt virðist nú vera í lukkunnar velstandi hjá fjórmenningunum, en samkvæmt frétt Us Weekly skelltu Kardashian og West sér í heimsókn til Beyoncé og Jay Z á dögunum til þess að fagna fimm ára afmæli dóttur þeirra, Blue Ivy. Rapparinn og raunveruleikastjarnan tóku þó ekki börnin sín tvö, North og Saint West, með í veisluna.