Börn Friðrik krónprins Danmerkur og Mary eiginkona hans, Kristján prins, Isabella prinsessa, Vincent prins og tvíburasystir hans, prinsessan Josephine, voru heldur betur fín í fatnaði frá 66 gráður norður í vetrarfríinu fyrir skömmu.
Myndir af þeim prýða Facebook-síðu dönsku konungsfjölskyldunnar og eru settar inn í fyrradag frá vetrarfríi þeirra. Kristján verður 12 ára í ár, Isabella er tveimur árum yngri og tvíburarnir eru fæddir árið 2011.