Söngkonan Cheryl Fernandez-Versini er sögð vera flutt inn með kærastanum, söngvaranum Liam Payne, en þau eiga von á sínu fyrstu barni.
Samkvæmt frétt Mirror sáust flutningabílar fyrir utan heimili söngkonunnar í Hertfordskíri, en hún er talin vera flutt inn í glæsihýsi Paynes í Surrey. Það ætti ekki að væsa um parið, enda er hús söngvarans í stærri kantinum, og hefur það að geyma sex svefnherbergi.
Söngkonan bjó með fyrrverandi eiginmanni sínum, Jean Bernard Fernandez-Versini, í Hertfordskíri og er húsið nú talið vera komið á markaðinn.
Fernandez-Versini og Payne hafa ætíð haldið sambandi sínu utan fjölmiðla, og greindu til að mynda ekki frá því fyrr en í síðustu viku að þau ættu von á barni, þrátt fyrir að hávær orðrómur þess efnis hefði gengið mánuðum saman.
Frétt mbl.is: Cheryl staðfestir loksins orðróminn