Sylvía Erla Melsted var að senda frá sér nýtt lag. Lagið heitir Wolf Call.
„Ég samdi lagið í London með Steven Manovski og Sam Grey. Þetta var mjög skemmtileg samvinna. Lagið var tilbúið á 4 tímum,“segir Sylvía Erla.
Lagið er um eldheitt ástarsamband en sagt frá sjónarhorni stelpurnar. Í þessu lagi er stelpan með 100% stjórnina og er bara að hafa gaman og njóta,“ segir hún.
Lagið komst á þrjá Spotify Play-lista sem heita New Music Friday á Íslandi, í Noregi og Danmörku á útgáfudegi þess.
„Ég er mjög þakklát fyrir frábærar móttökur sem lagið hefur fengið. Einnig er ég að vinna að myndbandi fyrir Wolf Call,“segir hún.