Camilla, hertogaynjan af Cornwall, og eiginkona Karls Bretaprins er ekki þekkt fyrir að vera sú fyndna í bresku konungsfjölskyldunni. Camilla lét þó til leiðast á dögunum og sló á létta strengi með leikaranum Callum Arnott þegar hún sló hann til riddara með blaðlauk.
Arnott virtist vera hrifin af Camillu og sagðist hafa sérstaklega mætt í gúmmístígvélum henni til heiðurs. Camilla gat því ekki gert annað gert en slá hann til riddara, þar sem ekkert sverð var á staðnum notaði hún á blaðlauk.
Arnott sem hafði þóst vera bóndi upplýsti eftir atvikið að hann væri leikari en ekki alvörubóndi en hann má þó eiga það að hann ólst upp á bóndabæ.
Camilla knights a farmer with a leek ¯\_(ツ)_/¯ https://t.co/pX1VYRoHvf pic.twitter.com/GH8B1mcJj3
— Daily Mail U.K. (@DailyMailUK) June 8, 2017