Bréf sem Elísabet drottning skrifaði til lady Hanriette Abel Smith, sex dögum eftir lát Díönu prinsessu, hefur litið dagsins ljós samkvæmt abc NEWS. Í bréfinu má sjá hversu annt Elísabetu var um barnabörnin sín, þá Vilhjálm og Harry, syni Díönu prinsessu og Karls Bretaprins.
„Þetta var vissulega skelfilega sorglegt, og hún er landinu mikill missir. En viðbrögð fólks við láti hennar og guðsþjónusta í Abbey virðist hafa sameinað fólk um allan heim á frekar hvetjandi hátt. Vilhjálmur og Harry hafa verið svo hugrakkir og ég er mjög stolt af þeim,“ skrifaði Elísabet.
„En við höfum öll gengið í gegnum mjög slæma reynslu,“ skrifaði drottningin til Smith og játaði fyrir henni að tilfinningarnar væru enn í mikilli flækju. En eftir að Díana lést héldu þeir Karl, Vilhjálmur og Harry til í Balmoral hjá Elísabetu og Filippusi, eiginmanni hennar.