Líkamsræktardrottningin Sara Heimisdóttir, sem skildi við Rich Piana í fyrrasumar, hefur tjáð sig um veikindi fyrrverandi eiginmanns síns þar sem að hún biður fyrir bata hans.
Rich Piana er haldið sofandi á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum þar sem að hann missti meðvitund að heimili sínu. Ekki er vitað um orsök meðvitundarleysisins en talið er að hann hafi tekið of stóran lyfjaskammt.
„Þrátt fyrir öll vandamálin okkar þá var tími sem að ég elskaði þennan mann. Ég giftist honum aðeins því ég elskaði hann,“ skrifaði Sara á Instagram-síðu sína. „Ég veit að hann elskaði mig og sama hversu mikið hann særði mig þá á hann þetta ekki skilið. Ég virkilega vona að hann komist í gegnum þessa myrku tíma og ég veit að ef eitthver getur það, þá er það hann.“
Sara bætir því við að hún ætli að halda áfram að biðja fyrir honum.