Áður en Karl Bretaprins og Díana prinsessa kynntust áttu Karl og núverandi eiginkona hans Camilla Parker Bowles í ástarsamband. Fyrst þegar þau áttu í ástarsambandi var það vegna þess að Camilla var að hefna sín á Andrew Parker Bowles.
Andrew átti síðar eftir að verða eiginmaður Camillu en á þessum tíma, snemma á áttunda áratugnum voru þau kærustupar. Andrew hélt framhjá Camillu meðal annars með Önnu Prinsessu systur Karls. Því ákvað vinkona Camillu að kynna hana fyrir Karli. Þetta kemur fram í bókinni The Duchess: The Untold Story eftir Penny Junor en bókin var samþykkt af Camillu.
Junor segir að Camilla hafi verið yfir sig ástfangin af Andrew og því hafi hvatinn að framhjáhaldinu verið að gera Andrew afbrýðisaman. „Hún vissi að framhjáhaldið með Karli mundi aldrei leiða til neins, það gæti ekki leitt til neins,“ skrifar Junor.
Junor vonast til þess að bókin eyði sögusögnum um Camillu og sýni þau jákvæðu áhrif sem Camilla hafði á Karl.