Tvær af þeim rúmlega fimmtíu konum sem hafa ásakað bandaríska grínistann Bill Cosby um kynferðislega áreitni krefjast þess að bæði hann og kvikmyndaleikstjórinn Roman Polanski verðir reknir úr bandarísku kvikmyndaakademíunni rétt eins og Harvey Weinstein.
Huffington Post greinir frá þessu en konurnar sendu framkvæmdastjórum akademíunnar bréf vegna málsins.
Réttarhöld standa yfir vegna Cosby en á 8. áratugnum var Polanski dæmdur fyrir nauðgun. Þeir hafa engu að síður fengið að halda sæti sínu ólíkt Weinstein þrátt fyrir að mál Weinstein sé ekki komið jafnlangt og mál Cosby eða Polanski.
Kvikmyndaakademían sér meðal annars um Óskarsverðlaunin sem veitt eru á hverju ári.