Hertogahjónin Katrín og Vilhjálmur munu heimsækja þrjú lönd á Norðurlöndum á næstunni. Katrín verður komin langt á leið þegar hún heimsækir Noreg og Svíþjóð.
Samkvæmt Hello er áætlað að bæði Katrín og Vilhjálmur munu heimsækja bæði Noreg og Svíþjóð snemma á næsta ári en þau eiga von á sínu þriðja barni í apríl. Hingað til hefur meðgangan ekki farið vel í Katrínu og mun hún til að mynda ekki fylgja Vilhjálmi til Finnlands í næsta mánuði.
Í síðustu viku mætti Katrín þó á nokkra opinberlega viðburði og mögulega er hún eitthvað að hressast en hún þjáist af mikilli morgunógleði. Upphaflega áttu þau Katrín og Vilhjálmur að heimsækja löndin þrjú í einni ferð í nóvember.
Einhver bið verður á því að Katrín og Vilhjálmur kíki í heimsókna á Bessastaði en breska konungfjölskyldan tengist norsku og sænsku konungsfjölskyldunni sterkum böndum. Elísabet Englandsdrottning er frænka Haraldar Noregskonungs. Breska konungsfjölskyldan tengist þeirri sænsku í gegnum Viktoríu drottningu.