Það hefur líkast til ekki farið fram hjá mörgum að skötuhjúin Harry Bretaprins og ástkona hans, Meghan Markle, hyggjast ganga í það heilaga á næsta ári.
Greint hefur verið frá því að turtildúfurnar hyggist gifta sig næsta vor, en samkvæmt frétt Mirror mun athöfnin fara fram laugardaginn 26. maí næstkomandi.
Með þessum áformum er parið að brjóta konunglega hefð, enda fara hjónavígslur kóngafólks jafnan fram á virkum degi eins og fram kemur í frétt miðilsins.
Breska konungsfjölskyldan hefur þó enn ekki staðfest tíðindin, svo það á eftir að koma í ljós hvort dagsetningin stenst.