Fréttir af nýju sambandi Hafþórs Júlíusar Björnssonar bárust í byrjun vikunnar. Sambandið við hina kanadísku Kelsey Henson hefur vakið mikla athygli, ekki síst vegna stærðarmunarins. Forvitinn aðdáandi spurði Henson á Instagram hvernig hún kyssti Hafþór.
Breskir fjölmiðlar greina frá því hvernig Henson útskýrði kossaaðferðina og segir í frétt Mirror að hún hafi útskýrt þetta á Instagram. „Hann beygir sig, ég fer upp á tær. Eða til fjandans með það, taktu mig upp,“ svaraði Henson.
A post shared by Kelsey Henson (@kelc33) on Nov 28, 2017 at 6:05pm PST