Krydddpían fyrrverandi Mel B er að ganga í gegnum skilnað við Stephen Belafonte. Til þess að loka Belafonte-kaflanum í lífi sínu lét Mel B fjarlægja húðflúr með nafni hans af líkama sínum.
„Stephen, till death do us part you own my heart“ var flúrað á líkama Mel B og skiljanlega vildi hún fjarlægja það enda var það ekki dauðinn sem aðskildi þau líkt og letrað var á hana heldur stormasamur skilnaður.
Það er ekki bara í Hollywood sem fólk húðflúrar á sig nafn elskhuga sinna. Fjölmiðlakonan Ellý Ármannsdóttir sagði frá því í síðustu viku að hún þyrfti að láta fjarlægja nafn af fyrrverandi kærasta af líkama sínum og var því í sömu vandræðum og Mel B var í ekki fyrir löngu.
„Ég gerði mestu mistök ævi minnar fyrir ekki alls löngu. Ég fékk mér húðflúr með nafni þáverandi kærasta. Hvar get ég látið taka þetta **** af mér? #égveit#ekkiorð,“ segir Ellý Ármannsdóttir á Facebook-síðu sinni.