Tónlistarmaðurinn Daði Freyr Pétursson vill ólmur komast í bandaríska raunveruleikaþáttinn Survivor sem fyrst fór í loftið í maí árið 2000 á CBS.
Í þáttunum er hópur keppenda settur á einangraðan stað þar sem þeir verða að útvega sér mat, eld og skjól. Keppendur keppa svo í áskorunum þar sem líkamleg geta þeirra eru könnuð, til dæmis með sundi og hlaupi, en einnig andleg geta þeirra með ýmsum þrautum.
Daði birti tíst á samfélagsmiðlinum X, sem áður hét Twitter, þar sem hann spyr CBS hvernig hann geti sótt um að taka þátt í sjónvarpsþáttunum.
„Hey, Survivor CBS, get ég sótt um að vera með í þættinum ef ég er með vegabréfsáritun (visa) eða þarf ég að vera bandarískur?“ spyr Daði í tístinu.
Einn notandi spyr Daða hvers vegna hann vilji taka þátt í þáttunum og hann svarar: „Vegna þess að þetta eru bestu þættir allra tíma og ég vil líka eina milljón dollara“ en í lok hverrar þáttaraðar stendur einn keppandi eftir sem sigurvegari og hlýtur verðlaunafé upp á eina milljón bandaríkjadala, eða sem nemur 141,5 milljónum króna á gengi dagsins í dag.
Hey @survivorcbs , can I apply to be on the show if I have visa or do I need to be a full blown american?
— Daði Freyr 🍉 (@dadimakesmusic) November 7, 2023
because it's the best show of all times and I also want 1 million dollars
— Daði Freyr 🍉 (@dadimakesmusic) November 7, 2023