Twitter iðaði af lífi undir merkinu #voiceisl þegar fyrsti þátturinn fór í loftið síðastliðinn föstudag. Eins og gengur og gerist höfðu menn margt um að ræða á samfélagsmiðlunum, en meðal þess sem hæst bar voru svipbrigði Helga Björns. Vöktu þau svo mikla lukku að Síminn fékk áskorun um að gera myndband um hin ýmsu svipbrigði Helga.
Síminn tók áskoruninni og hér í myndskeiðinu má sjá afraksturinn.
Inn á síðu helgaðri The Voice á mbl.is má skoða beint streymi frá Twitter merkt #voiceisl