„Það erfiðasta sem tengist þessari keppni er að vera fjarri fjölskyldunni, þau styðja samt vel við bakið á mér. Þetta er ferðalag sem þarf að taka en það kemur svo margt gott út úr þessu á móti. Þú kynnist öllu fólkinu og bransanum. Þetta hefur líka leyft mér að trúa að ég geti sungið.“ Segir Hjörtur Traustason að segja um vegferð sína í The Voice, en síðasti þátturinn fer í loftið á SkjáEinum á næstkomandi föstudagskvöld.
Hjörtur söng sig inn í hug og hjarta Íslendinga í fyrsta þætti beinna útsendinga þáttarins þegar hann, fyrstur þátttakenda, söng á íslensku.
Í undanúrlitaþætti The Voice var annar bragur á en Hjörtur tók slagarann House of The Rising Sun með Animals. Flutningurinn vakti mikla lukku og Hjörtur var kosinn áfram í úrslitaþáttinn í símakosningu.
„Hann er svona mjúkur rokkari og okkur langaði að sýna þá hlið á honum, Lagið er þekkt í öðrum búningum en við vildum fara út í rokkið,“ sagði Svala Björgvins, þjálfari Hjartar um lagavalið.
Lagið er löngu orðið að rokk-klassík og ófáar hljómsveitir hafa gert ábreiður af laginu. Meðal þeirra er íslenska sveitin Gildran en Hjörtur tók einmitt útgáfu Gildrunnar í þættinum, eins og glöggur twittverji kom auga á.
Ég er ekki frá því að hann sé að taka Gildru útgáfuna af Housinu #voiceisl
— Elli Pálma (@ellipalma) November 27, 2015
Þetta var ekki það eina sem var sagt um Hjört á samfélagsmiðlinum Twitter, því fer fjarri lagi.
Elska Hjört :) Veit ekki með útsetninguna en hún skiptir litlu þegar þú ert með stórsöngvara #voiceisl
— Heiðar Austmann (@haustmann) November 27, 2015
Hjörtur Trausta = gæsahúð. Þetta er rosalegt. #voiceisl
— Sigurður Jón (@siggivill) November 27, 2015
Hjörtur er alveg að fara að gera góða hluti #voiceisl #teamsvala
— Sylvia Olafsdottir (@SylviaOlafsdott) November 27, 2015