Á hraðbraut í hjólastólnum

Lögregla í bænum Neron í Galisíu á Spáni stöðvaði mann sem ók um á rafmagnshjólastól á hraðbraut nærri bænum, en hann hafði villst er hann var að leita að vændishúsi. Maðurinn er lamaður frá hálsi og niður, og var við handtökuna á „umtalsverðum hraða” á hjólastól sem hann stjórnaði með höku og munni.

Haft er eftir lögreglukonu í bænum að hann hafi reyndar ekki verið á ólöglegum hraða, en hafi hins vegar augljóslega skapað hættu, bæði sjálfum sér og öðrum.

Á lögreglustöðinni var athugað hvort maðurinn væri undir áhrifum áfengis, svo reyndist hins vegar ekki vera.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg